Hvernig geng ég frá pöntun í Shopify?

Inngangur

Eftir að viðskiptavinur sendir inn pöntun þarftu að ganga frá henni í Shopify og koma henni til okkar. Við getum einnig sótt pantanir til verslana alla virka daga.

Eftir að gengið er frá pöntun er hægt að fylgjast með stöðu sendingarinnar á umsjon.dropp.is.

Fyrst þarf að ganga frá pöntuninni í Shopify

Til að ganga frá pöntun þarftu að skrá þig inn á Shopify og smella á Orders.

Næst þarftu að velja pöntunina sem þú vilt ganga frá og smella á More actions og velja Ship orders with Dropp.

Næst þarf að smella á Labels og velja Get label.

Svo þarf að smella aftur á Labels og velja Download label 1.

Þá birtist strikamerki á PDF formi sem þú þarft að prenta út og líma á pakkann.

Þegar þú ert búin/n að skrá þig hjá Dropp birtist límmiðinn í A4 stærð.

Inni á umsjon.dropp.is undir Stillingar geturðu stillt stærðina á límmiðanum svo hann passi fyrir límmiðaprentarann þinn:

Ef sendingin er í tveimur eða fleiri pörtum geturðu prentað út fleiri strikamerki

Ef þú ert með sendingu sem er í fleiri en einum pörtum þarftu að smella aftur á Labels og velja Get Extra Label og svo á Download label 2.

Þú getur prentað eins mörg strikamerki eins og þú vilt en við mælum með að pakka vörum í sem fæsta pakka.

Það er mikilvægt að búa ekki til fleiri strikamerki en þú þarft þar sem vörur með fleiri en einu strikamerki eru ekki afhentar nema öll strikamerkin séu til staðar.

Svo þarf að afhenda sendinguna til Dropp

Þegar þú smellir á Ship orders with Dropp stofnast sendingin hjá okkur og við sendum tölvupóst og textaskilaboð á viðskiptavininn og látum hann vita að sendingin sé væntanleg.

Næst þarftu að prenta út límmiðann og líma á sendinguna

Síðan þarftu að koma pakkanum til okkar

Þú getur komið með pakkann til okkar. Upplýsingar um móttökustaði eru hér.

Þú getur einnig beðið um að láta sækja pakkana til þín

Við getum einnig sótt pakkann til verslunarinnar. Ef þú vilt að við sækjum pakkana þarftu að hafa samband við [email protected].

Að lokum geturðu fylgst með stöðu sendingarinnar

Þú getur fylgst með stöðu sendingarinnar inni á umsjon.dropp.is. Þú skráir þig inn með netfangi og lykilorði sem þú fékkst í tölvupósti frá Dropp þegar þú skráðir þig.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk! Eitthvað fór úrskeiðis. Vinsamlegast reyndu aftur seinna.